Settu innheimtuna í traustar hendur
Debitum.Gjaldskil er innheimtufyrirtæki sem býður heildstæðar lausnir í innheimtu krafna allt frá fruminnheimtu til löginnheimtu.
Debitum.Gjaldskil býður viðskiptavinum sínum heildstæða lausn á sviðið innheimtu, allt frá því að krafa er stofnuð og þar til hún er greidd. Debitum.Gjaldskil tekur við reikningum rafrænt og getur stofnað kröfur ef þess er óskað, auk þess að sjá um innheimtu allt frá stofnun kröfunnar yfir í löginnheimtu.
Kröfuhafar hafa aðgang að yfirliti um þeirra kröfur í kerfi Debitum.Gjaldskil og geta fylgst með framvindu þeirra. Markmið Debitum.Gjaldskil er að auðvelda fyrirtækjum að halda utan um og stjórna meðferð sinna krafna ásamt því að tryggja öruggara sjóðsstreymi og umfram allt að tryggja góð samskipti milli kröfuhafa og greiðenda.
Milliinnheimta.
Debitum.Gjaldskil leggur ríka áherslu á að gera samskipti milli kröfuhafa og greiðenda hnökralaus. Persónuleg þjónusta Debitum.Gjaldskil býður kröfuhöfum uppá ýmis úrræði ef krafa er ekki greidd á tilsettum tíma. Kröfuhafar geta óskað eftir sendingu innheimtubréfa auk símtala til að fylgja eftir kröfum og ganga á eftir greiðslu frá greiðanda.
Á þessu stigi er mikilvægt að viðhalda góðu sambandi milli kröfuhafa og greiðenda, því margþættar ástæður geta legið á baki þess að greiðandi hefur ekki innt greiðslu af hendi fyrir eindaga. Debitum.Gjaldskil er því til taks fyrir bæði kröfuhafa og greiðendur.
Löginnheimta.
Ef milliinnheimta Debitum.Gjaldskil ber ekki árangur þá býðst kröfuhöfum fagleg ráðgjöf um næstu skref. Löginnheimta er í eðli sínu íþyngjandi fyrir greiðendur enda öllum tiltækum úrræðum íslenska réttarkerfisins beitt. Því leggur Debitum.Gjaldskil áherslu á faglega ráðgjöf og gott upplýsingaflæði til kröfuhafa um næstu skref.
Aðgerðir í löginnheimtu geta meðal annars verið stefnubirting, greiðsluáskorun og dómsmeðferð. Ferli lögfræðiinnheimtu endar oftast með eingreiðslu skuldar eða samningi um greiðslu skuldar. Í sumum tilfellum nást ekki samningar og þá getur ferlið endað með fjárnámi, nauðungarsölu og gjaldþroti.
Gjaldskrá.
Gjaldskrá Debitum.Gjaldskil er í samræmi við reglugerð 37/2009 um hámarksfjárhæð innheimtukostnaðar og síðari breytingum 133/2010.
Hjá Debitum.Gjaldskil starfar samhentur hópur fólks sem hefur mikla reynslu og þekkingu á sviði innheimtu.
Við erum fagleg
Árangur
Alltaf góð mannleg þjónusta
Samskiptasamningur
Þróun
Forysta
Jafnrétti
Hafðu samband.
415 5990
Borgartún 26
105 Reykjavík
Mánudaga – Föstudaga:
09:00 – 12:00 og 13:00 – 15:00